Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2017


  • Hagtíðindi
  • 09. mars 2018
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 1,5% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 4,4%. Einkaneysla jókst um 6,5%, samneysla um 2,4% og fjárfesting um 3,5%. Útflutningur jókst um 7,5% á sama tíma og innflutningur jókst um 15,4%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,6% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2017. Þar af jókst einkaneysla um 1,5%, samneysla um 0,6%, en fjárfesting dróst saman um 4,5%. Útflutningur jókst um 7,2% og innflutningur um 3,2%.

Til baka