Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 08. mars 2013
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla á 4. ársfjórðungi 2012 jókst um 1,4% borið saman við 4. ársfjórðung 2011. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 2,6%. Einkaneysla jókst um 2,7% og samneysla um 0,5% en fjárfesting dróst saman um 23%. Útflutningur jókst um 1,8% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 5,6%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,5% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2012. Þar af mældist 1,5% aukning í einkaneyslu en þjóðarútgjöld drógust saman um 0,2% á ársfjórðungnum.

Til baka