Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2018


  • Hagtíðindi
  • 07. desember 2018
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2018 jókst að raungildi um 2,6% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 0,5%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla mælist óbreytt frá 2. ársfjórðungi 2018. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2018 jókst landsframleiðslan um 5% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2017. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,3%. Einkaneysla jókst um 5,4%, samneysla um 3,5% og fjárfesting um 2,7%. Útflutningur jókst á sama tímabili um 4,1% og innflutningur um 2,4%.

Til baka