Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 07. desember 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla á fyrstu níu mánuðum ársins jókst um 2% að raungildi samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 3,7%. Einkaneysla jókst um 3,2% og fjárfesting um 14,3%. Samneysla dróst hins vegar saman um 1,1%. Útflutningur jókst um 3% en innflutningur nokkru meira, eða um 6,6% á sama tímabili. Landsframleiðsla á 3. ársfjórðungi 2012 jókst um 2,1% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,5% frá 2. ársfjórðungi 2012. Uppfærð útgáfa 12. desember 2012.

Til baka