Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2011


  • Hagtíðindi
  • 07. desember 2011
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla fyrstu níu mánuði ársins 2011 jókst um 3,7% að raungildi samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2010. Hún jókst um 4,7% að raungildi milli 2. ársfjórðungs 2011 og 3. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 1,6%. Einkaneysla jókst um 1,1%, samneysla var óbreytt og fjárfesting dróst saman um 5,3%. Útflutningur jókst um 6,8% og innflutningur um 1,2%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.

Til baka