Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2010


  • Hagtíðindi
  • 07. desember 2010
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst um 1,2% að raungildi frá 2. ársfjórðungi 2010 til 3. ársfjórðungs 2010. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,2%. Einkaneysla jókst um 3,8% en fjárfesting dróst saman um 5,6%. Samneysla dróst saman um 0,6%. Á sama tímabili jókst útflutningur um 0,8% og innflutningur um 6,8%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára. Samanburður við 3. ársfjórðung 2009, á landsframleiðslu án árstíðaleiðréttingar, sýnir samdrátt um 1,6% á milli tímabila.

Til baka