Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2015


  • Hagtíðindi
  • 11. september 2015
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 jókst um 5,2% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 7,3%. Einkaneysla jókst um 4,4%, samneysla um 1,0% og fjárfesting um 21,2%. Útflutningur jókst um 9,0% og innflutningur nokkru meira, eða um 13,6%. Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2015, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 5,6% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,3% frá 1. ársfjórðungi 2015.

Til baka