Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2010


  • Hagtíðindi
  • 03. september 2010
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 3,1% að raungildi frá 1. ársfjórðungi 2010 til 2. ársfjórðungs 2010. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 7,4%. Einkaneysla dróst saman um 3,2% og fjárfesting dróst saman um 4,7%. Samneysla jókst um 1,0%. Á sama tímabili jókst útflutningur um 2,8% en innflutningur dróst saman um 5,1%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára. Samanburður við 2. ársfjórðung 2009, á landsframleiðslu án árstíðaleiðréttingar, sýnir samdrátt um 8,4% á milli tímabila.

Til baka