Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2016


  • Hagtíðindi
  • 07. júní 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Landsframleiðslan á fyrsta ársfjórðungi 2016 jókst um 4,2% að raungildi borið saman við 1. ársfjórðung 2015. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 8,3%. Einkaneysla jókst um 7,1%, samneysla um 0,1% og fjárfesting um 24,5%. Útflutningur jókst um 6,4% en innflutningur töluvert meira, eða um 15,2%.

Til baka