Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 08. júní 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst um 2,4% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2011 og 1. ársfjórðungs 2012. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 3,4%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. Einkaneyslan jókst um 0,3% og samneyslan um 0,4%. Fjárfestingin dróst hins vegar saman um 18,6%. Útflutningur dróst saman um 5,6% og innflutningur um 5,2% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára. Landsframleiðsla á 1. ársfjórðungi 2012, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 4,5% frá sama ársfjórðungi fyrra árs.

Til baka