Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2009


  • Hagtíðindi
  • 08. júní 2009
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 3,6% að raungildi frá 4. ársfjórðungi 2008 til 1. ársfjórðungs 2009. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 3,3%. Einkaneysla jókst um 1,7% en fjárfesting dróst saman um 31,3% og samneysla um 2,2%. Þá er talið að útflutningur hafi dregist saman um 1,9% en innflutningur aukist um 7,8%.

Til baka