Landsframleiðslan 2017 – endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 07. september 2018
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,0% á árinu 2017 og er nú 15,2% meiri en hún var árið 2008. Einkaneysla og fjárfesting vógu þyngst í vexti landsframleiðslunnar en alls jukust þjóðarútgjöld um 7,0%. Einkaneysla jókst um 7,9%, samneysla um 3,1% og fjárfesting um 9,5%. Útflutingur jókst um 5,5% á árinu 2017 sem er nokkuð hægari vöxtur en árið 2016 þegar útflutningur jókst um 10,9%. Á árinu 2017 jókst innflutningur um 12,5% og dró utanríkisverslun úr hagvexti þrátt fyrir 106,8 milljarðs króna afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári.

Til baka