Landsframleiðslan 2015 — endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 09. september 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,2% á árinu 2015 og hefur hún ekki áður verið hærri. Neysla og fjárfesting vógu þyngst í vexti landsframleiðslunnar en alls jukust þjóðarútgjöld um 6,0%. Einkaneysla jókst um 4,3%, samneysla um 1,0% og fjárfesting um 18,3%. Útflutningur jókst um 9,2% og innflutningur um 13,5%. Þrátt fyrir verulegan afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 166,6 milljarða króna, dró utanríkisverslun úr hagvexti.

Til baka