Landsframleiðslan 2007 - endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 11. september 2008
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,9% samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2007. Í áætlun frá því í mars síðastliðnum var talið að hagvöxtur á árinu 2007 hafi orðið 3,8%. Aukinn hagvöxt frá fyrri áætlunum má fyrst og fremst rekja til meiri fjárfestingar og samneyslu á árinu 2007 en áætlanir bentu til í mars auk endurskoðunar á mati á birgðum í stóriðju. Hagvöxtur á árinu 2006 er talinn sá sami og áður, eða 4,4%.

Til baka