Heilbrigðisútgjöld á Íslandi


  • Hagtíðindi
  • 02. apríl 2008
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Árið 2007 námu heildarútgjöld til heilbrigðismála 117,3 milljörðum króna, eða 9,2% af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 96,8 milljarðar króna en hlutur einkaaðila 20,5 milljarðar, eða 17,5% af útgjöldunum. Af heildarútgjöldum hins opinbera 2007 runnu 19% til heilbrigðismála. Sem hlutfall af landsframleiðslu hafa útgjöld til heilbrigðismála farið lækkandi frá 2003 er þau námu 10,4% af landsframleiðslu.

Til baka