Hagvísar í mars 2008


  • Hagtíðindi
  • 05. mars 2008
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í febrúar 2008 hækkaði um 1,38% frá fyrra mánuði (1,55% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,8% (3,9% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði samsvarar 9,3% ársverðbólgu (8,6% verðbólgu án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í janúar lækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði en lækkaði um 0,28% frá fyrra mánuði í EESríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði vísitalan um 3,1% á Íslandi og um 3,3% að meðaltali í EES-ríkjunum. Vísitala byggingarkostnaðar í febrúar hækkaði um 1,3% frá fyrra mánuði; 4,8% hærri en í febrúar 2007.

Til baka