Hagvísar í febrúar 2011


  • Hagtíðindi
  • 04. febrúar 2011
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í janúar 2011 lækkaði um 0,9% frá fyrra mánuði (lækkaði um 0,97% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,8% (2,4% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði jafngildir 2,1% ársverðhjöðnun (1,8% verðhjöðnun án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í desember hækkaði um 0,39% frá fyrra mánuði en hækkaði um 0,53% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði samræmda vísitalan um 3,5% á Íslandi og um 2,7% að meðaltali í EES-ríkjunum.

Til baka