Hagvísar í desember 2007


  • Hagtíðindi
  • 05. desember 2007
  • ISSN: 1670-4762

  • Skoða PDF
Vísitala neysluverðs í nóvember 2007 hækkaði um 0,65% frá fyrra mánuði (0,4% án húsnæðis). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 5,2% (1,9% án húsnæðis) en breytingin undanfarna þrjá mánuði samsvarar 10,3% ársverðbólgu (7,9% verðbólgu án húsnæðis). Samræmd neysluverðsvísitala EES á Íslandi í október hækkaði um 0,37% frá fyrra mánuði en hækkaði um 0,57% frá fyrra mánuði í EES-ríkjunum. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði vísitalan um 2,3% á Íslandi og um 2,6% að meðaltali í EES-ríkjunum.

Til baka