Fjármálareikningar: Fjáreignir og skuldir 2003-2012


  • Hagtíðindi
  • 28. mars 2014
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Fjáreignir heimila og félagasamtaka jukust á milli 2011 og 2012 og námu 3.795 milljörðum króna í árslok 2012, en stærstu fjáreignir heimila eru lífeyrisréttindi. Virði hlutabréfaeignar heimila og félagasamtaka jókst um 17,4% á milli áranna og nam 148 milljörðum króna í árslok 2012. Hlutafjáreign sem hluti af heildarfjáreignum þeirra var 3,9%, en svo hátt hefur hlutfallið ekki verið frá árinu 2007.

Til baka