Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2012


  • Hagtíðindi
  • 20. júní 2013
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2012 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða tæpum 277 milljörðum króna og jókst um 7,9% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 5,4%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 269 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 6,8% og í magni um 11,3%. Útflutningsverðmætið mælt á föstu verði jókst um 4,2% milli ára.

Til baka