Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2010


  • Hagtíðindi
  • 18. maí 2011
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2010 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 220 milljörðum króna og jókst um 10% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 6%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 220,5 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 5,7% en dróst saman í magni um 5,5%. Árið 2010 voru flutt út 632 þúsund tonn samanborið við 669 þúsund tonn árið áður. Frystar afurðir skiluðu 55% af heildarútflutningsverðmæti.

Til baka