Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2009


  • Hagtíðindi
  • 07. maí 2010
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2009 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 200 milljörðum króna og jókst um 10,9% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 7,6%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 208,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 21,8% en dróst saman í magni um 4%.

Til baka