Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2007


  • Hagtíðindi
  • 13. maí 2008
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2007 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 127 milljörðum króna og jókst um 2,8% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 2,3%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 127,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 2,6% en dróst saman í tonnum um 6,3%. Útlutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýrum og flatfiski jókst frá fyrra ári. Líkt og árið áður skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 12,7 milljarða króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 80% til Evrópska efnahagssvæðisins, 6,2% til Norður Ameríku og 6,1% til Asíu.

Til baka