Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2009


  • Hagtíðindi
  • 06. september 2010
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Innflutt hráefni til fiskvinnslu var 43.866 tonn árið 2009 og dróst saman í magni um tæp 87 þúsund tonn frá fyrra ári eða um 66%. Verðmæti þessa innflutnings var 6,2 milljarðar króna sem er tæplega 1,9 milljarða króna lægri fjárhæð en árið 2008 á verðlagi hvors árs og 38% lægri á föstu verðlagi ársins 2009 miðað við verðvísitölur sjávarafurða. Verðmæti innflutts hráefnis nam 9,6% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Til baka