Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2008


  • Hagtíðindi
  • 05. júní 2009
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Innflutt hráefni til fiskvinnslu var 130.649 tonn árið 2008 og jókst í magni um 25.447 tonn frá fyrra ári eða um 24,2%. Verðmæti þessa innflutnings var 8,1 milljarður króna sem er tæplega 2,4 milljarða krónu hærri fjárhæð en árið 2007 á verðlagi hvors árs, en 6,8% lægri á föstu verðlagi ársins 2008 miðað við verðvísitölur sjávarafurða. Minna var flutt inn af ufsa, síld og loðnu en árið áður. Innflutningur jókst á þorski, norsk-íslenskri síld, loðnuhrognum, kolmunna og rækju. Verðmæti innflutts hráefnis nam 13,9% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Til baka