Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2010


  • Hagtíðindi
  • 30. ágúst 2011
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2010 var afli íslenskra skipa rúm 1.063 þúsund tonn, 66 þúsund tonnum minni en árið 2009. Aflaverðmæti nam tæpum 133 milljörðum króna og jókst um 15,2% frá fyrra ári, eða um 11% ef mælt er á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum eða 45%. Af þorskaflanum fór mest í landfrystingu og einnig stærsti hluti ýsuaflans.

Til baka