Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2009


  • Hagtíðindi
  • 19. ágúst 2010
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Árið 2009 var afli íslenskra skipa tæp 1.130 þúsund tonn, 153 þúsund tonnum minni en árið 2008. Aflaverðmæti nam rúmum 115 milljörðum króna og jókst um 16,4% frá fyrra ári, en var 2,8% minna ef mælt er á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 42%. Af þorskaflanum fór mest í landfrystingu og einnig stærsti hluti ýsuaflans. Leiðrétt útgáfa 13. september 2010.

Til baka