Skráðir nemendur í framhalds- og háskólum haustið 2008


  • Hagtíðindi
  • 19. febrúar 2009
  • ISSN: 1670-4703

  • Skoða PDF
Á hverju hausti safnar Hagstofa Íslands upplýsingum um nemendur í framhaldsskólum og háskólum á Íslandi. Birtar eru tölur um skráða nemendur í skólum eftir kyni, kennsluformi, námsbrautum og stöðu í námi. Nemendum fjölgar ár frá ári og haustið 2008 eru skráðir nemendur á framhalds- og háskólastigi 47.282. Skráðum nemendum hefur fjölgað um 2,6% frá fyrra ári og er sú fjölgun minni en verið hefur undanfarin ár. Nemendum fjölgar á hvoru tveggja framhalds- og háskólastigi.

Til baka