Mannfjöldaþróun 2015


  • Hagtíðindi
  • 21. júní 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Hinn 1. janúar 2016 voru íbúar landsins 332.529. Þeim fjölgaði um 1% frá sama tíma árið áður eða um 3.429 einstaklinga. Árið 2015 fæddust 4.129 börn en 2.178 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 1.951. Þá fluttust 6.010 utan en 7.461 til landsins. Aðfluttir umfram brottflutta voru því 1.451 árið 2015.

Til baka