Innflytjendur og einstaklingar með erlendan bakgrunn 1996-2008


  • Hagtíðindi
  • 20. janúar 2009
  • ISSN: 1670-4487

  • Skoða PDF
Innflytjendum og einstaklingum með erlendan bakgrunn hefur fjölgað ört hér á landi undanfarin ár. Hinn 1. janúar 2008 voru innflytjendur á Íslandi 25.265, eða 8,1% mannfjöldans. Það er mikil aukning frá árinu 1996 þegar innflytjendur voru einungis 2% landsmanna, alls 5.357. Hlutfall innflytjenda hér á landi er nú álíka hátt og í Noregi og Danmörku. Aftur á móti er hlutfall annarrar kynslóðar innflytjenda mun lægra hér á landi en í þessum löndum. Árið 1996 tilheyrðu einungis 0,1% landsmanna annarri kynslóð innflytjenda en 0,5% árið 2008.

Til baka