Félagsvísar: Lágtekjumörk og skortur á efnislegum gæðum á meðal barna á Ísland


  • Hagtíðindi
  • 12. september 2022
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Árið 2021 var hlutfall barna sem bjó á heimilum undir lágtekjumörkum hærra en hlutfall allra landsmanna eða 13,1% samanborið við 8,9%. Sama ár var hlutfall barna sem skorti efnisleg gæði 4,2% samanborið við 3,7% landsmanna. Hlutföll barna undir lágtekjumörkum og sem skortir efnisleg gæði hafa nánast alltaf verið hærri en sömu hlutföll á meðal allra landsmanna yfir tímabilið 2004-2021. Árið 2020 var Ísland með lægsta hlutfall barna sem skorti efnisleg gæði í Evrópu.

Til baka