Vísitala launa 2013


  • Hagtíðindi
  • 24. mars 2014
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 5,7% milli áranna 2012 og 2013 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 6,1% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 4,9%. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,1% en laun starfsmanna sveitarfélaga um 4,7%. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun skrifstofufólks mest á milli ára eða um 7,5% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 5,3%.

Til baka