Vísitala launa 2010


  • Hagtíðindi
  • 31. mars 2011
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 4,7% milli áranna 2009 og 2010 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 6,0% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 1,9%. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun afgreiðslufólks mest á milli ára eða um 7,2% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tímabili hækkuðu laun mest í samgöngum og flutningum, um 8,0%, en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða um 3,6%.

Til baka