Vísitala launa 2007


  • Hagtíðindi
  • 05. mars 2008
  • ISSN: 1670-4509

  • Skoða PDF
Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 10,4% að meðaltali á milli áranna 2006 og 2007 samkvæmt vísitölu launa. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest á tímabilinu eða um 12,7% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 8,7%. Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 7,9% á sama tímabili. Laun eftir atvinnugrein hækkuðu mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J), um 14,8%. Minnst hækkuðu laun í iðnaði, um 8,9%.

Til baka