- Hagtíðindi
- 15. september 2025
- ISSN: 1670-4770
-
Skoða PDF
Kosið var til Alþingis 30. nóvember 2024. Við kosningarnar voru alls 268.490 manns á kjörskrá, eða 69,0% íbúa. Af þeim greiddu 215.395 atkvæði eða 80,2% kjósenda. Kosningaþátttaka kvenna var 81,2%, karla 79,2% og 69,9% hjá kynsegin/öðrum. Kosningaþátttakan var breytileg eftir aldri og var hún minni meðal yngri en eldri kjósenda. Kosningaþátttakan var 83,4% meðal einstaklinga sem engan erlendan bakgrunn hafa á meðan hún var 41,2% meðal innflytjenda.