Verðmæti seldra framleiðsluvara 2010


  • Hagtíðindi
  • 04. júlí 2011
  • ISSN: 1670-4568

  • Skoða PDF
Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2010 var 666 milljarðar króna, sem er aukning um tæplega 92 milljarða eða 16% frá árinu 2009. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 11,7% og hefur því verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 4,3% að raungildi. Framleiðsla málma og framleiðsla á fiskafurðum vega sem fyrr þyngst, þannig nam framleiðsla málma 37,1% af heildarverðmæti árið 2010 og framleiðsla fiskafurða 32,5%. Verðmæti seldra framleiðsluvara án fiskafurða og framleiðslu málma nam tæpum 203 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um rúma 19 milljarða eða 10,5% frá fyrra ári.

Til baka