Fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2015


  • Hagtíðindi
  • 15. mars 2016
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 15 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2015. Það er betri niðurstaða en á sama tíma 2014 þegar afkoman var neikvæð um 5 milljarða króna. Tekjuafgangurinn nam 2,7% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 5,7% af tekjum hins opinbera. Tekjuafkoma ársins í heild reyndist neikvæð um 10,7 milljarða króna eða um sem nemur 1,2% af tekjum hins opinbera.

Til baka