Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2014


  • Hagtíðindi
  • 23. september 2014
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 1,8 milljarða króna á 2. ársfjórðungi 2014, en það er mun hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2013 þegar hún var neikvæð um 11 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 0,4% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 0,9% af tekjum hins opinbera. Heildartekjur hins opinbera jukust um 8,0% milli 2. ársfjórðungs 2013 og 2014. Tekjuaukningin skýrist fyrst og fremst af auknum skatttekjum sem jukust um 6,8% frá sama ársfjórðungi 2013.

Til baka