Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 10. september 2013
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um rúma 16 milljarða króna á 2. ársfjórðungi 2013 sem er lakari niðurstaða en á sama tíma 2012 er hún var neikvæð um rúma 14 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 3,8% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 8,7% af tekjum hins opinbera. Fyrstu sex mánuði ársins nam tekjuhallinn 2,9% af landsframleiðslu tímabilsins eða 6,8% af tekjum hins opinbera, sem er nokkru meiri halli en á sama tímabili 2012, þegar hann nam 6,3% af tekjum.

Til baka