Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2010


  • Hagtíðindi
  • 06. september 2010
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Hið opinbera var rekið með 30 milljarða króna tekjuhalla á 2. ársfjórðungi 2010 samanborið við um 42 milljarða króna tekjuhalla á sama tíma 2009. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn um 8% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera um 18,6%. Á sama ársfjórðungi 2009 mældist tekjuhallinn rúmlega 11% af landsframleiðslu og 28,3% af tekjum hins opinbera. Þessi bætta afkoma skýrist fyrst og fremst af auknum skatttekjum sem hækkað hafa um 15% milli umræddra tímabila á sama tíma og dregið hefur verulega úr fjárfestingu hins opinbera.

Til baka