Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2017


  • Hagtíðindi
  • 14. júní 2017
  • ISSN: 1670-4770

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 17,6 milljarða króna á 1. ársfjórðungi 2017, eða sem nemur 3,1% af landsframleiðslu ársfjórðungsins. Á sama tíma árið 2016 var tekjuafkoma hins opinbera jákvæð um 370,7 milljarða króna. Þessi góða afkoma á 1. ársfjórðungi 2016 skýrist af stöðugleikaframlagi í ríkissjóð frá slitabúum fallinna fjármálafyrirtækja sem nam 384,3 milljörðum króna. Án stöðugleikaframlagsins hefði tekjuafkoma hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2016 verið neikvæð um 13,6 milljarða króna.

Til baka