Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2013


  • Hagtíðindi
  • 10. júní 2013
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 8,2 milljarða króna á 1. ársfjórðungi 2013 sem er lakari niðurstaða en á sama tíma 2012 er hún var neikvæð um 6,7 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 4,5% af tekjum hins opinbera. Heildartekjur hins opinbera jukust um 3,1% milli 1. ársfjórðungs 2012 og 2013. Tekjuaukningin skýrist fyrst og fremst af auknum tekjusköttum og vöru- og þjónustusköttum. Heildarútgjöld hins opinbera jukust um 3,8% milli 1. ársfjórðungs 2012 og 2013.

Til baka