Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2012


  • Hagtíðindi
  • 11. júní 2012
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 8,1 milljarð króna á 1. ársfjórðungi 2012, en það er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma í fyrra þegar hún var neikvæð um 11,8 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 4,6% af tekjum hins opinbera. Hefur tekjuafkoman ekki verið hagstæðari síðan á öðrum ársfjórðungi 2008 eftir þessum mælikvarða. Heildartekjur hins opinbera hækkuðu um rúm 11% milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2012 eða úr 160,8 milljörðum króna í 178,7 milljarða króna.

Til baka