Fjármál hins opinbera 2012 - endurskoðun


  • Hagtíðindi
  • 10. september 2013
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 65 milljarða króna árið 2012 eða 3,8% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 91 milljarð króna árið 2011 eða 5,6% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu um 740 milljörðum króna og hækkuðu um 59 milljarða króna milli ára eða um 8,7%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 43,6% samanborið við 41,8% árið 2011. Útgjöld hins opinbera voru 806 milljarðar króna og jukust um 34 milljarða króna milli ára eða 4,4% en hlutfall þeirra af landsframleiðslu var svipað bæði ár, eða 47,4%.

Til baka