Fjármál hins opinbera 2007


  • Hagtíðindi
  • 18. september 2008
  • ISSN: 1670-4665

  • Skoða PDF
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 70,7 milljarða króna árið 2007, eða 5,5% af landsframleiðslu og 11,3% af tekjum. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 6,3% af landsframleiðslu 2006 og 4,9% árið 2005. Þessi hagstæða tekjuafkoma stafar fyrst og fremst af miklum tekjuafgangi ríkissjóðs, sem nam 4,0% af landsframleiðslu árið 2007 og 5,3% árið 2006. Fjárhagur sveitarfélaganna hefur einnig verið jákvæður síðustu þrjú árin, enda þótt hann sé afar misjafn. Árið 2007 nam tekjuafgangur þeirra 8 milljörðum króna, eða 0,6% af landsframleiðslu, og árið 2006 um 4 milljörðum króna, eða 0,3% af landsframleiðslu.

Til baka