Þjónusta sveitarfélaga við fatlað fólk 2013


  • Hagtíðindi
  • 01. desember 2014
  • ISSN: 1670-4681

  • Skoða PDF
Árið 2013 veittu sveitarfélög 4.783 einstaklingum með fötlun þjónustu á 15 þjónustusvæðum og hafði þeim fjölgað um 523 (12,3%) frá árinu áður. Af þeim voru 1.910 börn 17 ára og yngri (39,9%). Drengir og karlar voru fleiri en stúlkur og konur í heildarhópnum eða tæp 62%, enda voru þeir í miklum meirihluta í yngsta aldurshópnum (tæp 73%). Í aldurshópnum 18-39 ára voru karlar rúmt 61%, en í aldurshópnum 67 ára og eldri voru konur mun fleiri eða 67%.

Til baka