FRÉTT ÝMISLEGT 31. MAÍ 2018

Hagstofa Íslands hefur í samræmi við þingsályktun Alþingis frá 16. maí 2014 staðið að sérstakri gagnasöfnun um kjörsókn eftir aldri kjósenda í þeim almennu kosningum sem haldnar hafa verið síðan þá. Í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum var sambærileg beiðni um skýrslugjöf send yfirkjörstjórnum 74 sveitarfélaga. Um skýrslugjöf yfirkjörstjórna í sveitarstjórnarkosningum segir í 88. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998: „Yfirkjörstjórn skal senda Hagstofu Íslands skýrslu um kosninguna ritaða á eyðublað er Hagstofan lætur í té.“

Í samræmi við lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð nr. 163/2007 og lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga  nr. 77/2000 tekur gagnasöfnunin mið af öruggri meðferð persónuupplýsinga samtímis sem gætt er að svarbyrði við framkvæmd. Hagstofan lætur kjörstjórnum í té rafrænt eyðublað og notar örugg vefsvæði til gagnaskipta. Í eyðublaðinu er hvorki notuð kennitala né nafn til að auðkenna persónu heldur er raðnúmer kjörskrár þess í stað nýtt til auðkenningar.

Að beiðni kjörstjórna er beðið um að skrásettar séu raðtölur þeirra sem kusu ekki til að minnka álag við innslátt. Auk heldur er í samræmi við fyrri reynslu tilgreint á eyðublaðinu hvort raðtalan eigi við um konu eða karl til að minnka villuhættu við innslátt. Eftir að yfirkjörstjórnir hafa skilað gögnum á öruggt vefsvæði fá gögnin nýtt auðkenni sem er ótengt kennitölu, nafni eða raðnúmeri kjörskrár en öðrum upplýsingum er eytt. Gögnin eru því hvorki rekjanleg til nafns né kennitölu.

Hagstofa Íslands hefur skýra heimild til að safna og nota persónugreinanleg gögn við hagskýrslugerð og leggur áherslu á örugga meðferð trúnaðargagna. Í aðdraganda alþingiskosninga haustið 2016 var beðið um álit Persónuverndar á því hvort vinnsla Hagstofunnar væri í samræmi við lög um persónuvernd nr. 77/2000 og gerði Persónuvernd engar athugasemdir við vinnsluferlið.

Um er að ræða brýnar upplýsingar um samfélagsgerð og lýðræðislega virkni borgaranna. Í ljósi þess að erfitt getur verið að fá fulla þátttöku frá ungu fólki og fólki með erlendan uppruna í úrtaksrannsóknum þá er sú leið illfær til að fá áreiðanlegar upplýsingar um kosningaþátttöku þeirra. Því hefur verið kallað eftir sérstökum  skýrslum frá yfirkjörstjórnum um kosningaþátttöku, enda skiptir áreiðanleiki niðurstaðna sköpum fyrir notagildi þeirra.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.