FRÉTT ÝMISLEGT 10. ÁGÚST 2021

Nokkrir aðilar hafa haft samband við Hagstofuna vegna undarlegra tölvupósta sem þeir hafa fengið og líta þeir við fyrstu sýn út fyrir að koma frá Hagstofunni.

Efnisheiti póstsins er ,,Hagstofan deilir skrá með þér".

Þessi póstur er ekki frá Hagstofu Íslands og eru móttakendur hvattir til að eyða póstinum strax og alls ekki smella á neina tengla né viðhengi.

Hér að neðan má sjá sýnishorn af viðhengi þessa svikapósts.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.