Starfsáætlun Hagstofu Íslands fyrir árið 2026 er komin út en í henni er gerð grein fyrir áherslum í hagtölugerð og uppbyggingu nauðsynlegra gagnainnviða innan Hagstofunnar næstu árin í samræmi við áherslur í núgildandi stefnu stofnunarinnar.
Stefna Hagstofu Íslands 2025-2027 felur í sér þrjár lykiláherslur: aðgengilegar upplýsingar og þekking, samræmd högun upplýsinga og ferla og þekkingarmiðað starfsumhverfi. Með þjónustu, áreiðanleika og framsækni að leiðarljósi eiga þessar lykiláherslur að styðja við þá framtíðarsýn Hagstofunnar að vera framsækin þekkingarmiðstöð.
Það er von Hagstofunnar að starfsáætlunin veiti notendum og stjórnvöldum yfirsýn yfir helstu áherslur stofnunarinnar og nýjungar í starfsemi hennar með skýrum og samandregnum hætti.
Starfsáætlun Hagstofu Íslands 2026