Neysla á kindakjöti hér á landi var að jafnaði 18,8 kíló á hvern íbúa árið 2011, en það er minnsta neysla frá því að Hagstofan hóf að safna slíkum gögnum árið 1983. Til gamans má geta þess að árið 1983 var neysla á kindakjöti 45,3 kíló á hvern íbúa. Árið 2007 varð neysla alifuglakjöts í fyrsta sinn meiri en neysla kindakjöts. Í fyrra var neysla á alifuglakjöti að meðaltali 24,2 kíló á hvern íbúa.
Þessar upplýsingar má finna í Landshögum 2012, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kemur út í dag, mánudaginn 19. nóvember. Landshagir eru lykilrit um opinbera hagskýrslugerð á Íslandi og er yfirlit tölulegra upplýsinga um flesta þætti efnahags- og félagsmála.
Af öðrum upplýsingum í Landshögum 2012 má m.a. nefna þessar:
- 95% afplánunarfanga eru karlar
- Kosningaþátttaka í forsetakosningum 2012 var 69%
- Mannfjöldi í heiminum er 6,9 milljarðar
- Meðalævilengd íslenskra kvenna árið 2011 var 83,6 ár
- Rúmlega 3.000 manns bjuggu á stofnunum með vistrými fyrir aldraða árið 2010
Landshagir 2012 – Útgáfa